Gunni hann er frægur, hann söng á sólóplötu, þeir segja að konur þekki Helga P. á götu. Kornabörn í vöggu þau kunni á Gústa skil, en kannist ekki við að ég sé til. Allir eru að gera það gott nema ég Allir eru að gera það gott nema ég. Ég get sungið líka, mín altrödd yndisleg, en allir eru að gera það gott nema ég. Ég veit að Snjólaug skrifar bækur ár hvert eitt, og aðrir fleiri líka eins og ekki neitt. Jökull slær á feilnótu og fleiri lenda á blað. Hví í fjandanum biður enginn mig: biður mig enginn um það. Allir eru að gera það gott nema ég Allir eru að gera það gott nema ég. Ég get sungið líka, mín altrödd yndisleg, en allir eru að gera það gott nema ég. Ég heyri líka að íhaldsmenn þeir eigi nóg og ýmsir kratar jafnvel meira en tvenna skó og framsóknarmenn sumir hér geymi gildan sjóð, en Guð veit ég á bara tár og blóð. Allir eru að gera það gott nema ég Allir eru að gera það gott nema ég. Ég get sungið líka, mín altrödd yndisleg, en allir eru að gera það gott nema ég.