(Eyrað) Hölluðum hurðum er best að loka. Þó veggirnir hafi ekki eyru eru eyru á bak við. Þau heyra þig hvísla og klappa af kæti. Greina jafnvel aldur þinn af hljómfalli. (Augað) Þú getur heyrt fyrir horn í því sem er fjarri hlustað á tónlist og samtöl við aðra. En ég get séð hendur sem handleika fiðlur og hljómsveitarstjórann sem telur í. Halla undir flatt horfi lóðréttum augum á fingurna strjúkast við streng. Tónarnir nálgast hlustirnar taka við. Skynjunin er ekki lengur mín. (Eyrað) Hlusta á fiðlurnar byrja með léttum dansi. Litla tromma tifar, túbur leysa vind Þrumandi bassar og tónlistin hækkar breytist í orrustugný hámarkinu er náð. Hljómurinn fellur, hlusta láréttum eyrum á fingurna sleppa sínum streng. Tónarnir deyja, sjónin tekur við. Skynjunin er ekki lengur mín.